Þjónusta

Allt sem þarf til að vaxa

Frá heimasíðum og auglýsingum til stefnu og greininga, Vexana finnur þær lausnir sem skila mestum árangri fyrir þitt fyrirtæki

Umsjón með Meta Ads

Auglýsingar

Markvissar herferðir á Facebook og Instagram með stöðugri eftirfylgni og greiningu, byggðar á gögnum, ekki tilgátum.

Innifalið: uppsetning herferða og markhópagreining, hönnun auglýsinga, A/B prófanir og lifandi mælaborð.

FacebookInstagramRemarketingMælaborð

Vefsíðugerð

Vefþróun

Við hönnum og smíðum faglegar vefsíður sem endurspegla vörumerki þitt og skila árangri. Hraðar, farsímavænar og byggðar til að breyta heimsóknum í viðskiptavini.

Innifalið: stefnumótun og uppbygging síðu, hönnun sem endurspeglar vörumerkið, smíði og prófun, og grunn-SEO uppsetning.

HönnunVefþróunSEO grunnurFarsímavænt

Póstlista markaðssetning

Póstlistar

Markvissar tölvupóstherferðir sem efla viðskiptatengsl og bæta árangur, allt frá nýjum áskrifendum til endurtekinna kaupenda.

Innifalið: uppsetning og skipulag póstlista, hönnun, greining á opnun- og smellitíðni.

PóstlistarSjálfvirkniHerferðir

Umsjón með samfélagsmiðlum

Samfélagsmiðlar

Við sjáum um reglulegar birtingar á helstu samfélagsmiðlum, sniðnar að rödd vörumerkisins og markhópnum.

Innifalið er birtingaáætlun, efnisstefna, hönnun og textagerð fyrir hverja birtingu ásamt samskiptum við fylgjendur.

InstagramFacebookTikTokLinkedInBirtingaplanEfnisstefna

Hönnun

Hönnun

Hönnun á auglýsingum og efni sem endurspeglar þitt vörumerki og grípur augað í fréttaveitu.

Innifalið: hönnun auglýsingamynda, borða og aðlögun að vörumerki og miðli.

Grafísk hönnunVörumerki

Ráðgjöf

Ráðgjöf

Stundum þarf ekki heila herferð heldur skýra sýn á næstu skref. Við setjumst yfir stöðuna með þér og bendum á hvað skilar mestum árangri fyrir þinn rekstur.

Innifalið: yfirferð á núverandi markaðsstarfi, tillögur að úrbótum og forgangsröðun aðgerða, hvort sem við tökum þær að okkur eða ekki.

YfirferðTillögurForgangsröðun

Markaðsstefna og greining

Stefna

Samkeppnis- og markhópagreining er grunnur að árangursríkum markaðsaðgerðum.

Innifalið: greining á samkeppni og markaði, skilgreining markhópa og áætlun.

SamkeppnisgreiningMarkhópagreiningStefnumótun
Hvernig virkar samstarfið

Frá fyrstu greiningu að stöðugum vexti

01

Upphafsfundur

Við kynnumst rekstrinum, markmiðunum og því sem þið viljið ná fram.

02

Greining og stefna

Við förum yfir stöðuna, markhópinn og tækifærin og mótum skýra aðgerðaáætlun.

03

Uppsetning

Við fáum nauðsynlega aðganga og setjum upp herferðir, mælingar, síður eða efni eftir því sem á við.

04

Framkvæmd og hagræðing

Við hrindum aðgerðunum í framkvæmd, fylgjumst með árangri og hagræðum út frá raunverulegum gögnum.

05

Lifandi yfirsýn og næstu skref

Þið fáið aðgang að lifandi mælaborði þar sem hægt er að fylgjast með helstu árangursmælingum. Við förum reglulega yfir stöðuna og ákveðum næstu skref saman.

Allt byrjar á góðu samtali

Engar skuldbindingar

Bóka fund →