Frá heimasíðum og auglýsingum til stefnu og greininga, Vexana finnur þær lausnir sem skila mestum árangri fyrir þitt fyrirtæki
Markvissar herferðir á Facebook og Instagram með stöðugri eftirfylgni og greiningu, byggðar á gögnum, ekki tilgátum.
Innifalið: uppsetning herferða og markhópagreining, hönnun auglýsinga, A/B prófanir og lifandi mælaborð.
Markvissar Search, Display og YouTube herferðir með stöðugri eftirfylgni og greiningu, til að ná til fólks nákvæmlega þegar það er að leita að þinni þjónustu.
Innifalið: leitarorðagreining, uppsetning og textagerð, tenging við mælingar og stöðug hagræðing herferða.
Við hönnum og smíðum faglegar vefsíður sem endurspegla vörumerki þitt og skila árangri. Hraðar, farsímavænar og byggðar til að breyta heimsóknum í viðskiptavini.
Innifalið: stefnumótun og uppbygging síðu, hönnun sem endurspeglar vörumerkið, smíði og prófun, og grunn-SEO uppsetning.
Markvissar tölvupóstherferðir sem efla viðskiptatengsl og bæta árangur, allt frá nýjum áskrifendum til endurtekinna kaupenda.
Innifalið: uppsetning og skipulag póstlista, hönnun, greining á opnun- og smellitíðni.
Við sjáum um reglulegar birtingar á helstu samfélagsmiðlum, sniðnar að rödd vörumerkisins og markhópnum.
Innifalið er birtingaáætlun, efnisstefna, hönnun og textagerð fyrir hverja birtingu ásamt samskiptum við fylgjendur.
Hönnun á auglýsingum og efni sem endurspeglar þitt vörumerki og grípur augað í fréttaveitu.
Innifalið: hönnun auglýsingamynda, borða og aðlögun að vörumerki og miðli.
Stundum þarf ekki heila herferð heldur skýra sýn á næstu skref. Við setjumst yfir stöðuna með þér og bendum á hvað skilar mestum árangri fyrir þinn rekstur.
Innifalið: yfirferð á núverandi markaðsstarfi, tillögur að úrbótum og forgangsröðun aðgerða, hvort sem við tökum þær að okkur eða ekki.
Samkeppnis- og markhópagreining er grunnur að árangursríkum markaðsaðgerðum.
Innifalið: greining á samkeppni og markaði, skilgreining markhópa og áætlun.
Við kynnumst rekstrinum, markmiðunum og því sem þið viljið ná fram.
Við förum yfir stöðuna, markhópinn og tækifærin og mótum skýra aðgerðaáætlun.
Við fáum nauðsynlega aðganga og setjum upp herferðir, mælingar, síður eða efni eftir því sem á við.
Við hrindum aðgerðunum í framkvæmd, fylgjumst með árangri og hagræðum út frá raunverulegum gögnum.
Þið fáið aðgang að lifandi mælaborði þar sem hægt er að fylgjast með helstu árangursmælingum. Við förum reglulega yfir stöðuna og ákveðum næstu skref saman.